Saga í hverjum bita, hefð í hverjum rétti.
Við bjóðum þér í ferðalag um bragðheima austurlanda. Með gæði hráefnisins að leiðarljósi og hefðina í fyrirrúmi, tökum við á móti þér með opnum örmum og rjúkandi mat eins og hann gerist bestur. Skoðaðu allt úrvalið og finndu þinn uppáhaldsrétt.
Matseðill
Matseðillinn okkar samanstendur af vandlega völdu hráefni"
Veislur & Fyrirtæki
Gerðu viðburðinn ógleymanlegan með bragði af austurlenskri gestrisni. Við bjóðum upp á fjölbreyttar veitingar fyrir hvers kyns tilefni, hvort sem um er að ræða árshátíðir fyrirtækja, fjölskylduveislur eða fundi. Okkar ferska falafel, hummus og safaríka shawarma færa ilminn af austurlöndum beint til ykkar. Hafðu samband og við setjum saman seðil sem hentar þínum hóp fullkomlega.
Vörur
Í gegnum áranna rás höfum við fengið fjöldamargar beiðnir frá viðskiptavinum okkar um að eiga kost á því að nálgast okkar vörur. Við höfum því þróað vörulínu undanfarin misseri og má þar helst nefna okkar sívinsæla Mandi Hummus, en í dag þá framleiðum við þrjár bragðtegundir af Mandi hummus. Einnig framleiðum við tvær bragðtegundir af frosnu Mandi falafel, vinsælu Mandi sósurnar okkar, frosnar pizzur, falafel duft, Mandi hrísgrjón og kryddlínu sem samanstendur af fimm tegundum.